Sérhæfð áfalla- og ofbeldismóttaka Landspítala
Gamli kennaraskólinn - Laufásvegur 81, Reykjavík
Lesa meiraBryndísarhlíð verður samþætt áfalla- og ofbeldismóttaka Landspítala þar sem öll lykilþjónusta verður veitt undir sama þaki. Þar verður ný ofbeldismóttaka fyrir börn og ungmenni, ásamt sérhæfðum teymum sem sinna áfallameðferð og stuðningi við þolendur ofbeldis. Markmiðið er skjót, samræmd og fagleg heilbrigðisþjónusta án þess að börn og fjölskyldur þurfi að fara á milli ólíkra staða eða kerfa.
Miðstöðin er nefnd eftir Bryndísi Klöru Birgisdóttur, sautján ára stúlku sem lést í kjölfar hnífaárása á Menningarnótt 2024. Minning hennar lifir áfram í verkefni sem miðar að því að vernda börn og tryggja þeim öruggt umhverfi og aðgengi að viðeigandi aðstoð þegar á þarf að halda.
Bryndísarhlíð er hluti af markvissu átaki stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og gagnvart börnum. Þjónustan verður skipulögð og rekin af Landspítala og hinu opinbera, en Minningarsjóður Bryndísar Klöru er fjárhagslegur bakhjarl uppbyggingar aðstöðunnar með fjárframlagi, vinnuframlagi og innanstokksmunum.
“Bryndísarhlíð verður öruggur staður fyrir börn og ungmenni sem þurfa stuðning vegna ofbeldis. Minning Bryndísar Klöru lifir í þeirri von að ekkert barn og engin fjölskylda þurfi að upplifa slíkan harmleik.”
Foreldrar Bryndísar Klöru
Iðunn & Birgir
Bryndísarhlíð byggir á þremur meginþáttum sem allir stefna að sama markmiði: að vernda börn og ungmenni og tryggja þeim samfellda, örugga og faglega þjónustu.
Öruggt og barnvænt umhverfi þar sem hægt er að leita sér aðstoðar án hindrana. Áhersla er á að draga úr kerfisflakki og tryggja að börn fái þjónustu á einum stað, með skýru verklagi og hraðri móttöku.
Sérhæfð þverfagleg þjónusta sem byggir á bestu þekkingu og rannsóknum. Í Bryndísarhlíð verður meðal annars nýtt áfallateymi barna, ásamt teymum Landspítala sem sinna áfallameðferð fullorðinna og samhæfðri nálgun við ofbeldismál.
Sérfræðingar með reynslu og þekkingu veita faglegan stuðning, ráðgjöf og eftirfylgd. Lögð er áhersla á samvinnu við aðra kerfishluta þannig að börn og fjölskyldur fái rétta þjónustu á réttum tíma.
Bryndísarhlíð verður til húsa í Gamla Kennaraskólanum við Laufásveg 81 í Reykjavík. Staðsetningin er sérstaklega heppileg vegna nálægðar við Barnaspítala Hringsins, auk þess sem bráðaþjónusta Landspítala mun á næstu árum færast á þetta svæði.
Húsið er friðað og á sér ríka sögu. Nú mun það gegna nýju mikilvægu hlutverki sem heimili Bryndísarhlíðar. Með því að sameina sérþekkingu á sviði ofbeldis- og áfallamála undir eitt þak skapast betri skilyrði til að byggja upp sérþekkingu, bæta gæði þjónustu og tryggja samfellda þjónustu. Jafnframt opnast framtíðarmöguleikar á sameiginlegri aðstöðu fyrir skoðun vegna kynferðisofbeldis, óháð aldri.
Húsið þarf endurbætur áður en starfsemi getur hafist.
Minningarsjóður Bryndísar Klöru hefur þegar safnað 120 m.kr. til verkefnisins og stefnir að því að leggja alls til 200 m.kr.,
auk vinnuframlags og innanstokksmuna sem færð verða húsinu að gjöf, svo uppbyggingu megi ljúka á um það bil einu ári.
Samhliða er unnið að skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum landsins og fer forprófun skimunar fram í mars 2026.
Opinber tilkynning um Bryndísarhlíð – húsnæðið, starfsemina og framtíðarsýnina. Kynning á samstarfi heilbrigðisráðuneytisins, Landspítala og Minningarsjóðs Bryndísar Klöru.
Endurbætur hefjast til að aðstaða uppfylli kröfur um heilbrigðisþjónustu, bæði byggingarstaðla og kröfur um öryggi og gæði í rekstri. Framlag Minningarsjóðsins styður hraða og vandaða uppbyggingu aðstöðunnar.
Framkvæmdir og innréttingar halda áfram, ásamt undirbúningi á búnaði og verklagi. Unnið er að því að tryggja að lykilþjónusta og teymi starfi með samræmdu verklagi undir sama þaki frá fyrsta degi.
Miðstöðin opnar formlega og tekur við börnum og ungmennum, ásamt öðrum þolendum ofbeldis og áfalla eftir því sem þjónustan verður innleidd, með áherslu á skjót viðbrögð og samfellda þjónustu.
Bryndísarhlíð er byggt á kærleika og hugrekki. Þetta er samstarfsverkefni opinberra aðila, Minningarsjóðs Bryndísar Klöru og samfélagsins alls.
Þjónustan í Bryndísarhlíð verður skipulögð og rekin af Landspítala. Sérfræðingar spítalans sjá um alla þjónustu við börn og ungmenni sem þurfa á aðstoð að halda.
Minningarsjóðurinn leggur til allt fjármagn til að koma húsnæðinu í viðunandi stand. Framlag sjóðsins er húsnæðið fyrir starfsemina.
Skoða mbk.is“Byggt á kærleika - hugrekki - samkennd 🩷”